ÞJÓNUSTUVEFUR English
LEIT


Snorrabraut 56a

105 Reykjavík

Sími 511 4800

Fax 511 4810

spuni@spuni.is

www.spuni.is

Ráðgjöf vegna þarfagreiningar
Mikilvægur hlekkur í þeirri ráðgjöf sem Spuni veitir er að greina þarfir viðskiptavinarins og meta hvaða lausnir henta best hverju sinni.

Hvort sem um er að ræða gerð vefs, forritun eða önnur verkefni er mikilvægt að aðilar átti sig sameiginlega á því hvaða tilgangi vefurinn eða hugbúnaðurinn á að þjóna, hvaða þarfir hann á að uppfylla, hvaða væntingar eru gerðar til hans og hvernig þróun hans og viðhald til framtíðar eru hugsuð.

Í þarfagreiningarskýrslu er útliti, uppbyggingu og virkni lausnarinnar lýst ítarlega. Á grundvelli hennar gerir Spuni verðtilboð, óski viðskiptavinurinn eftir því. Þarfagreiningarskýrslan getur líka komið að notum við útboð þar sem leitað er eftir fleiri verðtilboðum í tiltekna lausn.

Sendu okkur línu Heim Til baka Upp